miðvikudagur, 15. apríl 2009

Pakki frá NZ

Hvað haldið þið!!! Ég fékk pakka alla leið frá Nýja Sjálandi en þar er einmitt systir mín að læra rosalega mikið. Mér finnst reyndar að hún ætti að fara að koma heim til Íslands og sjá hvað ég er orðinn stór og myndarlegur, en þangað til, verður hún bara að skoða myndirnar hér á síðunni minni. Takk, takk, takk fyrir pakkann.

2 ummæli:

Þórunn Gréta sagði...

Þetta er ekkert smá töffaraleg húfa frá stóru systur. Mér finnst líka að hún eigi að fara að koma heim, þó ég hafi ekkert stækkað síðan hún kom síðast. Kannski kemur hún ef við biðjum nógu oft og nógu fallega... ;)

Nafnlaus sagði...

Oh, sendi systir þín þér svona rosalega stóra húfu - ég veit reyndar að hún lítur stórt á bróður sinn.
Við skulum öll biðja oft og nógu fallega um að hún komi heim, þó ekki væri nema bara í heimsókn. Væri ekki september góður tími? Okkur verður örugglega að ósk okkar :)
Kær kveðja,
Anna Guðný