Á efstu myndinni er ég að leika með Karítas frænku minni, hún lyfti mér á bak á Vindu, sem er merin hennar risastóru systur. Á næstu mynd er mamma að kenna mér að moka og á neðstu myndinni erum við amma að skoða bók.
sunnudagur, 17. ágúst 2008
Svipmyndir frá Skipalæk
Á efstu myndinni er ég að leika með Karítas frænku minni, hún lyfti mér á bak á Vindu, sem er merin hennar risastóru systur. Á næstu mynd er mamma að kenna mér að moka og á neðstu myndinni erum við amma að skoða bók.
þriðjudagur, 12. ágúst 2008
Sprellikarl
Í lok júlí voru Þórunn Gréta risastóra systir og Dabbi mágur á ferðinni fyrir austan. Þau komu og kíktu á nýja fína húsið okkar mömmu og með þeim var Anna Guðný, systramóðir mín. Hún færði mér innflutningsgjöf með svakalega fínni slaufu sem var gaman að toga í. En ofan í pokanum var alvöru ítalskur Gosa sprellikarl. Hann var alveg stórmerkilegur. Ég var fljótur að sjá hvernig hann virkar. Á meðan mamma og Anna Guðný töluðu um alls konar innanhúsframkvæmdir steinþagði ég og æfði mig í að leika með sprellikarlinn.
miðvikudagur, 16. júlí 2008
miðvikudagur, 11. júní 2008
Heimsókn í Hafnarfjörðinn



Um síðustu helgi fórum við mamma til Hafnarfjarðar og hittum Brynju frænku og Kára. Við gistum þar nokkrar nætur og meira að segja var ég aleinn hjá þeim heila nótt á meðan mamma fór í sumarbústað. Ég stóð mig vel, eins og alltaf, og Brynja hrósaði mér mikið fyrir hvað ég var duglegur. Ég hitti líka Iðunni Margréti og Kjartan Ísak og það var sko rosalega gaman. Hér eru myndir úr þessari ferð
Lífið á Læk
Það er ýmislegt sem ég stússa í hér á Skipalæk. Meðfylgjandi eru myndir sem segja meira en mörg orð
sunnudagur, 1. júní 2008
....fleiri myndir.....
Þarna var ég nýbúinn að hjálpa mömmu að hengja út þvott og eins og venjulega var ég mjög hjálpsamur. Ég tíndi allan þvottinn uppúr balanum, setti hann í grasið og settist síðan sjálfur í balann. Mér fannst þetta skemmtilegt en mamma var ekkert ánægð með hvernig ég fór með tandurhreinan þvottinn, en ég veit að það er alltaf hægt að þvo hann aftur svo að ég hef engar áhyggjur
Labb og Skriðuklaustur




Við mamma vorum á Skipalæk í morgun og eftir hádegið fórum við með Fjólu ömmu og Þóreyju í Skriðuklaustur og þar var ýmislegt skemmtilegt að sjá. Ég labbaði um langa ganga, hitti fullt af skemmtilegu fólki og fékk líka rosalega góða vöfflu með sultu og rjóma, líka eplaköku. Hér eru myndir sem voru teknar í dag
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)





